Dæmi um verkefni
Hér að neðan eru dæmi um verkefni sem Quantum vinnur að.
Af trúnaðarástæðum er ekki hægt að greina frá öllum verkefnum opinberlega.
Félagið er fasteigna- og þróunarfélag sem byggir upp grænan iðngarð á Reykjanesi í 35.000 m² húsnæði sem upphaflega var reist fyrir álverið hjá Norðuráli. Áhersla er lögð á fjölbreytta atvinnustarfsemi í húsnæðinu sem hafði staðið autt í rúman áratug þegar Græni iðngarðurinn keypti það.
Upphafsmenn og stofnendur verkefnisins eru Dr. Þór Sigfússon og Kjartan Þór Eiríksson, sem báðir búa yfir víðtækri reynslu á sviði greiningar á samkeppnishæfni og klasauppbyggingar. Öflugir fjárfestar komu inn í verkefnið fyrir kaupin á húsnæðinu.
Hlutverk Quantum er tímabundin fjármálastjórn, þar sem Karl stýrir fjármálum félagsins og fjármögnun og í samskiptum við fjárfesta og fjármögnunaraðila.
Félagið er rekstrarfélag hótels með 50 herbergjum og 25 íbúðasvítum, sem eru allar innan við 300 metra frá hótelinu. Hótelið og íbúðirnar eru í hjarta Reykjavíkur og hafa hlotið frábærar umsagnir gesta og hæstu einkunnir fyrir staðsetningu.
Hlutverk Quantum er að stýra söluferli félagsins.
Ef þig vantar trausta ráðgjöf um áhugavert verkefni, þá er velkomið að hafa samband. Nánari upplýsingar um hvernig er hægt að ná í mig má finna hér að neðan.

