Um Quantum
Quantum er sjálfstæð fjármálaráðgjöf sem veitir fyrirtækjum og fjárfestum trausta ráðgjöf við mikilvægar fjárhagslegar ákvarðanir.
Áhersla er lögð á vandaða greiningu, skýra nálgun og framkvæmd sem skilar raunverulegri verðmætasköpun.
Reynsla og bakgrunnur
Ég hef starfað á fjármálamörkuðum í yfir 30 ár sem stjórnandi og ráðgjafi og unnið náið með fjárfestum, eigendum og stjórnum fyrirtækja á öllum sviðum fjármála.
Á yngri árum var ég skákmaður í fremstu röð í heiminum og tvívegis Skákmeistari Íslands. Skákiðkun kenndi mér einbeitingu, langtímahugsun og mikilvægi þess að greina stöðuna vel áður en ákvörðun er tekin – lærdómur sem á jafnt við í fjármálum og viðskiptum.
Ég hóf feril minn hjá Búnaðarbankanum, þar sem ég starfaði meðal annars sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og tók virkan þátt í sameiningu bankans við Kaupþing. Í framhaldi lauk ég Sloan Fellowship Program (meistarapróf í fjármálum og stjórnun) við
London Business School og starfaði síðan hjá MP fjárfestingabanka í London.
Frá árinu 2007 hef ég starfað við fjármálaráðgjöf, bæði sjálfstætt og sem meðeigandi og stjórnarformaður hjá Centra fyrirtækjaráðgjöf.
Quantum – nafnið og nálgunin
Ákvörðunin um að starfa undir nafni Quantum endurspeglar þá nálgun sem ég vil hafa í ráðgjöf: að vinna með fáum, vel völdum verkefnum og veita ráðgjöf sem bætir árangur viðskiptavina.
Nafnið Quantum hefur skírskotun til ólíkra sviða. Í skammtafræði er quantum minnsta eining sem getur breytt ástandi kerfis. Í James Bond-myndinni Quantum of Solace má tengja nafnið við að greina flókið samhengi og komast að kjarna málsins. Og í fjármálasögunni er Quantum -sjóður (Georg Soros) þekktur fyrir skýra greiningu og mjög stóra skortstöðu gegn breska pundinu árið 1992, sem síðan skilaði sjóðnum gríðarlegum hagnaði þegar Bretland yfirgaf ERM-myntbandalagið.
Gildi Quantum eru traust, innsýn og árangur, gildi sem falla vel að nafninu og nálguninni.
Traust byggist á fagmennsku, heiðarleika og trúnaði. Innsýn byggist á reynslu, þekkingu og vinnusemi. Árangur felst í því að styðja viðskiptavini við að taka réttar ákvarðanir þegar mestu máli skiptir.
Þessi gildi eru leiðarljós í allri þeirri ráðgjöf sem Quantum veitir.

