Empty office with white desk and black office chair, sunlight streaming through blinds onto gray wall.
Quantum logo with a stylized Q and mountain peak graphic inside the circle

Traust · Innsýn · Árangur

Sjálfstæð fjármálaráðgjöf:

Hvernig get ég hjálpað?

Ég hef meira en 30 ára reynslu af störfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og nýt trausts viðskiptavina, öflugra fjárfesta og helstu fjármögnunaraðila. Sérstaða mín felst í samspili þekkingar, víðtækrar reynslu og tengslanets sem nýtist bæði fyrirtækjum og fjárfestum.

Frá skákiðkun þekki ég mikilvægi langtímahugsunar og þess að greina stöðuna vel áður en ákvörðun er tekin.

Í fjárfestingum gilda sömu lögmál – að bera saman valkosti, meta áhættu og velja þann „leik“ sem hámarkar ávöxtun til lengri tíma.

Ég vinn eftir gildum Quantumtraust, innsýn og árangur – og legg áherslu á vandaða greiningu og framkvæmd sem skilar raunverulegri verðmætasköpun fyrir viðskiptavini.

Centra image

Fjármagn er drifkraftur verðmætasköpunar. Fyrir rekstur fyrirtækja, ávöxtun fjárfesta og velsæld þjóða, skiptir máli að góð verkefni fái fjármögnun og framgang til að blómstra.

Hafðu samband ef þú vilt trausta ráðgjöf við mikilvægar fjárhagslegar ákvarðanir.

Quantum veitir þjónustu:

fyrir fyrirtæki og fjárfesta